Kynntu þér verkefni EFLU í gegnum árin.
Þróun ganga fyrir ferðamenn inn í jökulinn, sinna öllum undirbúningi og hönnun og hafa umsjón með framkvæmdum. Vegna eðlis verkefnisins var mikil áhersla lögð á umhverfis- og öryggismál.
Nýtt og glæsilegt mannvirki, Hús íslenskunnar, hefur risið við Arngrímsgötu í Reykjavík.
EFLA skrifaði um ástand fráveitumála á sjö stöðum á vatnasviði Mývatns og leggja mat á kostnað við aðgerðir til að draga úr áhrifum fráveitanna á lífríki vatnsins.
Rangárþing ytra vann deiliskipulag fyrir íbúðarsvæði á svokölluðum Öldum III á Hellu. Í tillögunni er gert ráð fyrir misstórum lóðum fyrir einbýlis-, rað- og parhús, á einni til tveimur hæðum.
EFLA vinnur að forhönnun nýrrar brúar yfir Ölfusá við Efri-Laugardælaeyju. Eftir gerð brúarinnar mun hringvegurinn flytjast norður fyrir Selfoss.
Endurnýjun á rafbúnaði, lýsingu, fjarskiptabúnaði, umferðarstýringum og fl. í neðansjávargöngum.
Hjólastígur milli Miklubrautar og Bústaðavegar var gerður sumarið 2016 samhliða fækkun akreina niður í eina í hvora átt. EFLA hannaði og sá um gerð útboðsgagna vegna framkvæmdanna.
Vistferilsgreining raforkuvinnslu með vindorku við Búrfell.
Gestastofan hýsir þjónustumiðstöð Vatnajökulsþjóðgarðs með sýningar- og kennsluaðstöðu auk rýma fyrir starfsmenn þjóðgarðsins. Við hönnunina var lögð áhersla á tengsl byggingarinnar við umhverfið og vistræn sjónarmið.
EFLA hefur um árabil veitt Síldarvinnslunni hf. heildarþjónustu á sviði rafmagnshönnunar fyrir afldreifingu og iðnaðarstýringu. Þá hefur EFLA komið að verkefnastýringu og ráðgjöf vegna orkukaupa fyrir fiskmjölsverksmiðjur og fiskiðjuver fyrirtækisins.
EFLA sá um að vinna deiliskipulag fyrir hafnarsvæðið í Grindavík. Meginmarkmið verkefnisins var að setja ramma um hafnarstarfsemina á svæðinu, vöxt hennar og viðhald.
EFLA sá um lýsingarhönnun fyrir útibú Landsbankans í Reykjanesbæ þegar innréttingar bankans voru endurhannaðar.
Brúin yfir Fífuhvammsveg liggur yfir eina umferðarþyngstu götu landsins og er mjög áberandi. EFLA sá um lýsingarhönnun brúarinnar.
EFLA var eftirlitsaðili með framkvæmdum við Vaðlaheiðargöng sem eru 7,2 km löng göng milli Eyjafjarðar og Fnjóskadals.
EFLA kom að byggingu 3.300 m2 hjúkrunarheimilis á Egilsstöðum og sá um hönnun burðarvirkja, lagna- og loftræsikerfa, raflagna, öryggis- og brunavarna ásamt því að veita ráðgjöf um hljóðvist.
Á síðustu misserum hafa útsýnis- og göngupallar risið við vinsæla ferðamannastaði á landinu. EFLA hefur komið að hönnun fjölmargra þeirra í samstarfi við arkitektastofur.
EFLA sá um fjölmarga þætti í viðbyggingu Fjölbrautarskólans í Breiðholti sem er 1.950 m2 bygging og hýsir kennslustofur og matsal skólans. Viðbyggingin er á þremur hæðum.
EFLA greindi umferð um gatnamót Vesturlandsvegar og Borgarbrautar í Borgarnesi. EFLA notaði dróna til að mynda gatnamótin og notaði hugbúnað til þess að telja og greina umferðina.
EFLA kannaði uppruna svifryks í Reykjavík. Um var að ræða rannsóknarverkefni sem styrkt var af rannsóknarsjóði Vegagerðarinnar þar sem hlutfall einstakra uppsprettuefna í svifryki voru metin.
EFLA kom að endurbætingu lýsingu í þjóðveldisbænum í Þjórsárdal. Þjóðveldisbærinn er af mörgum talinn eitt best geymda leyndarmál Íslands en bærinn er tilgátuhús byggt á einu af stórbýlum þjóðveldisaldar.
Verkefnið fólst í hönnun á hátæknisetri Alvotech á sviði lyfjaþróunar og lyfjaframleiðslu. Stærð byggingarinnar er um 13.000 m2. Húsið er allt í senn framleiðslu-, rannsóknar- og skrifstofuhúsnæði.
Rammaskipulagið er stefnumörkun sveitarstjórnar Skeiða- og Gnúpverjahrepps um áherslur á sviði ferðaþjónustu, útivistar og samgangna í Þjórsárdal. EFLAvar ráðgjafi sveitarfélagsins við stefnumörkunina og sá um gerð tillögu, úrvinnslu og framsetningu.
EFLA gerði vistferilsgreiningu (Life Cycle Assessment, LCA) fyrir steinull sem er framleidd hjá Steinull hf. á Sauðárkróki en um er að ræða fyrstu vistferilsgreininguna fyrir íslenskt byggingarefni.
Norðurorka uppfærði skjákerfi félagsins til að auka öryggi og áreiðanleika stjórnkerfa þess. EFLA var ráðgjafi í verkefninu og sá um uppsetningu, hönnun og gangsetningu á nýju Siemens WinCC skjákerfi.
EFLA hefur staðið að undirbúningi fyrsta sjálfakandi bílsins á Íslandi fyrir Snjallborgarráðstefnu Reykjavíkurborgar í samstarfi við Heklu, Smyril Line og Autonomous Mobility sem sérhæfir sig í sjálfbærum samgöngulausnum.
Verkefnið fólst í verkhönnun stækkununar Hrauneyjafossvirkjunar, mögulegri viðbót á fjórðu vélasamstæðunnin sem yrði 70 MW, auk annarrar ráðgjafar tengdri verkefninu.
Í Glerá á Akureyri eru tvær smávirkjanir sem sjá bæjarfélaginu fyrir rafmagni. EFLA hefur komið að virkjununum með ýmsum hætti, m.a. með forathugunum, hönnun og verkefnastjórnun.
EFLA var hluti af Spital hópnum sem sá um skipulagsgerð og forhönnun nýs sjúkrahótels Landspítalans við Hringbraut.
EFLA annaðist vistferilsgreiningu (e. Life Cycle Assessment, LCA) á flutningskerfi raforku á Íslandi.
EFLA vann að gerð deiliskipulags fyrir ferðamannasvæðið við Hamragarða og Seljalandsfoss.
EFLA vann að úrbótum á sjálfvirknikerfi Ölgerðarinnar, svokölluðum þjörkum (róbótum), sem pakkar glerflöskum í kassa eða öskjur og staflar á bretti.
Verkefnið felst í hönnun nýrrar skrifstofubyggingar Alþingis sem mun standa á sama reit og Alþingishúsið. Nýbyggingin sameinar starfsemi Alþingis undir einn hatt. EFLA sér um alla verkfræðihönnun fyrir verkið.
Atvinnuvega og nýsköpunarráðuneytið ákvað árið 2017 að að ráðast í umfangsmikið verkefni þar sem lagt er mat á álag á íslenskt samfélag, efnahag, innviði og umhverfi vegna fjölda ferðamanna á Íslandi.
Verkefnið felst í hönnun útsýnispalls á Bolafjalli við Bolungarvík.
Ný brú yfir Eldvatn, hönnuð af EFLU í samstarfi við Vegagerðina, er fyrsta netbogabrúin sem byggð er á Íslandi.
EFLA sá um verkfræðihönnun og lýsingarhönnun á Vök Baths nýjum áningarstað ferðamanna á Austurlandi.
EFLA hefur veitt ráðgjöf varðandi styrkingu tveggja gamalla stálbitabrúa í Agderfylki í Noregi.
EFLA sá um alla verkfræðiráðgjöf fyrir nýtt veitumannvirki vatnsveitu Mosfellsbæjar. Mikil áhersla var lögð á að mannvirkið myndi falla vel í landslagið en framkvæmdin eykur rekstraröryggi vatnsveitunnar til muna.
Verkefnið fólst í hönnun á 700 m2 þjóðgarðsmiðstöð með vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk og gestamóttöku með sýningarsal og veitingasölu á Hellissandi fyrir Snæfellsjökulsþjóðgarð.
Vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Snæfellsbæjar var óskað eftir að EFLA ynni mat á vindorku á fyrirfram skilgreindu svæði auk þess sem frumathugun á vatnsaflsvirkjunarkostum yrði framkvæmd innan sveitarfélagsins.
Hönnun á göngu- og hjólastíg, vegum, brúm, meðhöndlun yfirborðsvatns, fyrirkomulagi raf- og fjarskiptakapla í jörð, lýsingu, landmótun, jarðtækni og umhverfistækni ásamt gerð útboðsgagna.
Hönnun á nýju mannvirki við Ullevaal leikvanginn í Osló, útfærsla á grunnskipulagi svæðis og gerð verkgagna.
Hönnun á nýrri stálbrú, göngu- og hjólastíg, vatns- og fráveitukerfi, lýsingu, jarðtæknileg hönnun á fyllingum undir vatni og gerð útboðsgagna.
Hönnun á 16,5 km löngum vegi, Fv. 715 Keiserås - Olsøy sem er partur af tollvegakerfinu Fosenvegene.
EFLA hefur hannað brú yfir Úlfarsá á Fellsvegi fyrir Reykjavíkurborg. Brúin er eftirspennt plötubrú í þremur burðarhöfum, alls 46 m löng.
Hönnun á göngubrú yfir Markarfljót við Þórsmörk. Gæta þurfti þess að brúin félli sem best að nánast ósnortnu landslaginu og að brúin stæðist sterka vinda sem blása um svæðið.
EFLA tók saman upplýsingar um þróun heildartekna af raforkuafhendingu til rafhitaðs heimilis sem notar 30.000 kWh/ári og 85% orkunnar fer til hitunar húsnæðis og jafnframt er sýndur kostnaður notandans.
Á hverju ári er tekin saman greinargerð um hvernig gengið hefur á árinu áður að reka flutningskerfi Landsnets. Teknir eru saman stuðlar um afhendingaröryggi og fyrirvaralausar truflanir í flutningskerfinu.
Raforkuhópur orkuspárnefndar vinnur að gerð raforkuspáa sem gefnar eru út á um fimm ára fresti auk þess sem spárnar eru endurreiknaðar árlega út frá nýjum gögnum um orkunotkun og þróun þjóðfélagsins.
Hönnun, forritun og gangsetning á umferðarstýringu fyrir stór farartæki í einbreiðum jarðgöngum.
Hönnun veg- og gangstígalýsingar, lýsingar í undirgöngum og við göngubrú auks skrautlýsingar í hringtorgum og undirgöngum.
Uppbyggingu á nýju íbúðahverfi í Urriðaholti í Garðabæ þar sem EFLA hefur séð um hönnun gatna, stíga, fráveitukerfis, grænna ofanvatnslausna og gatnalýsingu ásamt gerð lóðarblaða með áhersla á ofanvatnslausnir.
Þrjár skýrslur voru unnar varðandi uppbyggingu salernisaðstöðu fyrir ferðamenn. Gerð var ástandsgreining á öllu landinu, kostnaður metinn við uppbyggingu og rekstur og tillögur gerðar.
Á hverju ári gefur Landsnet út kerfisáætlun sem hefur að geyma ýmsar kerfisgreiningar. EFLA er stór ráðgjafi í þessu verkefni og vinnur mikið að þeim greiningum sem kerfisáætlunin byggir á.
EFLA sá um að reikna hönnunarflóð í 16 vatnsföllum í Sørfold í Norður-Noregi vegna vegagerðar og gerðar tillögur að rofvörnum þar sem þurfti.
Verkefnið fólst í hönnun skólphreinsistöðvar til úboðs ásamt mati á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar og ráðgjöf varðandi leyfismál og mat á viðtaka.
Nýr 92 MVA afriðill byggður og gangsettur fyrir Fjarðaál á Reyðarfirði. EFLA sá um yfirverkefnisstjórn í verkefninu.
Isavia bauð út ræstingar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar samkvæmt staðlinum INSTA 800 og leitaði til EFLU um ráðgjöf við gerð útboðsgagna sem uppfylltu kröfur staðalsins.
EFLA sá um verkefnastjórnun og byggingarstjórnun fyrir endurbyggingu á 192 MVA afriðli RF12 hjá Alcoa Fjarðaáli á Reyðarfirði
EFLA vann náið með Isavia við umhverfisgreiningar á öllum starfsstöðvum og skilgreiningu á mikilvægum umhverfisþáttum sem er forsenda umhverfisstefnu ásamt markmiðum og aðgerðaráætlun. Umhverfisstefna var samþykkt og innleidd af Isavia.
Hönnun strætóreinar á Miklubraut við Rauðagerði, göngu- og hjólastígs, einnig hljóðvarna með gróðri milli götu og stíga.
Hönnun og aðstoð við framkvæmdir við uppbyggingu staðarins fyrir ferðaþjónustu. Bílastæði var stækkað, þjónustuhús byggt ásamt öllum veitum fyrir það ásamt gönguleiðum, pöllum og lýsingu inni í hellinum.
Hávaðakortlagning vegna reglugerðar um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir nr. 1000/2005 og tilskipunar 2002/49/EB var framkvæmd fyrir Vegagerðina og ýmis sveitarfélög.
EFLA hafði umsjón með alhliða hljóðhönnun í nýbyggingu Höfðatorgs, skrifstofuhúsnæðis Reykjavíkurborgar. Byggingin hefur að geyma mikið af stórum opnum skrifstofurýmum, fundarherbergjum, matsal og móttöku á fyrstu hæð.
Hönnun á þremur vegköflum norðan Þrándheims, þ.á.m. nýr göngu- og hjólastíg meðfram núverandi vegi ásamt breytingum á núverandi vegi, ofanvatnskerfum, veglýsingu, skiltum og merkingum og gerð útboðsgagna.
Umsjón með vöktunarbúnaði, sýnataka, mælingar og birting uppýsinga í vefgátt.
Statnett lét leggja 210 km langa 420 kV háspennulínu frá Balsfjord í Troms-fylki til Skillemoen í Finnmörku. Fyrirhugað er að framlengja línuna til Skaidi, um 90 km leið.
Statnett lætur nú leggja 150 km langa 420 kV háspennulínu frá Ofoten í Norðlandi til Balsfjord í Troms-fylki. Hún liggur um sjö sveitarfélög.
Norðurál og Orkuveita Reykjavíkur óskuðu eftir að EFLA tæki að sér forathugun og forhönnun á 90 MWe jarðvarmavirkjun við Hverahlíð á Hengilsvæðinu.
Markmið verkefnisins var að gera áhættumat starfa hjá Háskólanum í Reykjavík (HR). Áhættumatið náði til allra starfseininga skólans.
Statnett styrkti og útvíkkaði flutningskerfið í Suður- og Vestur-Noregi, á svæðinu frá Feda í Suður-Noregi til Sauda á Rogalandi. EFLA vann að burðarþols- og raftæknilegri hönnun línanna.
EFLA sá um verkfræðihönnun á raðhúsahverfi í Garðabæ sem inniheldur 25 raðhús og er hvert um sig 150 m2.
EFLA hefur aðstoðað Statnett að auka flutningsgetu margra háspennulína frá árinu 2019. Fyrst við undirbúning, þróun vinnulags, aðferða og forritunar og síðan við hönnun, framkvæmdir og frágang á verkstað.
Þarfagreining og lausnir í sorpmálum Ísafjarðarbæjar.
EFLA vann spennandi verkefni með Heilsupróteini ehf. Viðfangsefnið er smíði nýrrar verksmiðju á Sauðárkróki sem vinna mun próteinduft úr mysu sem fellur til við framleiðslu osta á Sauðárkróki og Akureyri.
EFLA yfirfór allar jarðfræðirannsóknir og skýrslur um nýtingu á jarðvarma til raforkuframleiðslu fyrir Maspo Enerji í Tyrklandi. Hlutverk EFLU var að staðfesta hugmyndalíkan út frá segulsviðsmælingum og staðsetja næstu vinnsluholur.
Landbúnaðarland í Kjósarhreppi var flokkað í fjóra flokka eftir mikilvægi lands til akuryrkju. Starfsfólk EFLU var ráðgjafi í verkefninu og sá um gerð tillögu, úrvinnslu og framsetningu.
EFLA sá um uppbyggingu á sjálfvirku fóðurkerfi og dælustýringu fyrir fiskeldisstöð Íslandsbleikju.
Eskja hf. tók í notkun nýtt hátæknivætt uppsjávarfrystihús á Eskifirði. Húsið er 7000 m2 að stærð og eru allir vinnsluferlar sjálfvirkir. EFLA sá um byggingarhönnun fyrir nýtt uppsjávarfrystihús Eskju.
EFLA uppfærði rafkerfi og stjórnkerfi við steypulínu þannig að það samræmist gildandi stöðlum Norðuráls.
EFLA undirbjó og hannaði 132 kV jarðstrengslagnar milli Fitja og Helguvíkur á Reykjanesi. Um var að ræða tengingu á nýju tengivirki Landsnets sem sér kísilveri United Silicon fyrir raforku.
Björgunarfélag Árborgar ásamt EFLU unnu tilraunaverkefni sem fólst í að athuga möguleikann að nota dróna sem var útbúinn hitamyndavél til að leita að fólki á landi og legi.
Vegna mikillar fjölgunar ferðamanna við Skaftafell þurfti að endurhanna bílastæði og aðkomu inn á svæðið. EFLA sá um forhönnun á vegsvæðum og bílastæðum í samstarfi við Landslag.
EFLA framkvæmdi mat á umhverfisáhrifum á tveimur umhverfisþáttum fyrirhugaðrar 95 MW Hvammsvirkjunar í Þjórsá, þ.e. áhrif virkjunarinnar á ferðaþjónustu og útivist og svo á landslag og ásýnd lands.
EFLA og teiknistofan Eik á Ísafirði unnu að verkefninu í samstarfi við Fjórðungssamband Vestfirðinga. Talsverðar breytingar hafa orðið í atvinnulífi á Vestfjörðum undanfarin ár með fjölgun ferðamanna og auknu fiskeldi.
EFLA tók þátt í Verk og vit 2016 sem fór fram í Laugardalshöll. Lýsingarhönnuðir EFLU hönnuðu eftirtektarverða og hrífandi lýsingu í kynningarbásnum sem vakti mikla athygli.
Vetrarhátíð, hátíð ljóss og myrkurs, er haldin árlega í Reykjavík. EFLA fékk það verkefni að vekja til lífs ýmsar styttur bæjarins og gæða þær lífi með ljósi og hljóði.
Pir Syd er bráðabirgðaflugstöð við Gardermoenflugvöll í Noregi og var hún tekin var í notkun í september 2012. EFLA var fengin til að hanna raflagnir byggingarinnar.
EFLA sá um hönnun og ráðgjöf vegna allra kerfa Norðfjarðarganga eins og rafkerfi, stjórnkerfi, lýsingu, fjarskiptakerfi, loftræsingu, neyðarstjórnun og öryggismál.
EFLA, ásamt Studio Granda arkitektum, varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppni Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar um hönnun á þremur nýjum göngubrúm yfir Hringbraut og Njarðargötu í tengslum við færslu Hringbrautar.